Fotbolti.net
11.08.26 - 11:34
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Evrópubikarinn: Íslensku liðin til Kýpur og Rúmeníu

Breiðablik og FH eru á toppi Bestu deildarinnar sem stendur.

Breiðablik og FH eru á toppi Bestu deildarinnar sem stendur.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
Í dag var dregið í 1. umferð forkeppninnar í Evrópubikar kvenna og voru tvö íslensk lið í pottinum. FH vann sér inn þátttökurétt með því að enda í 2. sæti Bestu deildarinnar í fyrra og Íslandsmeistararnir í Breiðabliki misstu af sæti í 3. umferð forkeppninnar í Meistaradeildinni en unnu leik um sæti í þessari keppni gegn meisturunum frá Belarús.
Breiðablik mætir rúmenska liðinu FK Csíkszereda og FH mætir Apollon frá Kýpur. Um fyrstu Evrópuleiki í sögu kvennaliðs FH er að ræða.

Spilað er heima og að heiman, spilað verður 26. ágúst og svo 2. september. Breiðablik byrjar á heimavelli en FH á útivelli.

24 lið voru í pottinum, sigurvegarnir tólf fara áfram í næstu umferð og þar koma inn 20 lið úr forkeppni Meistaradeildarinnar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.