Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 11. september 2020 10:37
Elvar Geir Magnússon
Koeman vill fá þessa fjóra til Barcelona
Ronald Koeman, stjóri Barcelona.
Ronald Koeman, stjóri Barcelona.
Mynd: Getty Images
Ronald Koeman stjóri Barcelona hefur látið æðstu menn félagsins fá lista með fjórum nöfnum sem hann vill fá til félagsins áður en glugganum verður lokað.

Marca greinir frá þessu en þrír af leikmönnunum hafa spilað undir stjórn Koeman hjá hollenska landsliðinu.

Um er að ræða Memphis Depay sóknarleikmann Lyon, Georginio Wijnaldum miðjumann Liverpool og Stefan de Vrij miðvörð Inter.

Þá vill Koeman líka fá spænska varnarmanninn Eric Garcia frá Manchester City en hann var í akademíu Börsunga.

Memphis, Wijnaldum og Garcia eru allir á lokaári samnings síns.

Miralem Pjanic er eini leikmaðurinn sem hefur gengið í raðir Barcelona í þessum glugga en hann kom frá Juventus.
Athugasemdir
banner
banner
banner