Liverpool vill fá Suarez - Bayern meðvitað um áhuga frá Sádi - Leikmaður Palace heillar stórlið - Barca býður lægri laun
Ísak Bergmann: Langt síðan við höfum farið ósigraðir úr glugga
Jón Dagur: Verður eins og Covid leikur
Ellefu dagar í Bestu - Gæðastjórinn útskýrir xF
Steini: Hún er á mun betri stað en fyrir hálfu ári
Davíð Örvar: Við gefum öllum liðum leik
Maggi: Hann átti frábæran leik í dag
41 árs Birkir Már: Vonandi í síðasta skipti sem ég næ ekki 90 mínútum
Valdimar Þór: Skil dómarann að gefa mér gult
Daniel Badu: Þessi leikur sýndi okkur að við eigum enn eitthvað í land
Sölvi Geir um óvænta innkomu Sveins Margeirs: Þetta er okkar leikmaður og við pössum upp á þá
„Þurfum að læra sem lið að loka þessum leikjum"
Mikael Egill svekktur: Hann hló og sagði ekki séns
Arnar: Leið eins og við værum að spila á móti liði frá 1980
Orri Steinn þakklátur - „Maður tekur þessu ekki sem sjálfsögðum hlut"
Jasmín Erla: Það er galið að maður sé að spila í þessu
Ian Jeffs: Ég ætla ekki að tjá mig um það
Tomasz Luba: Það er ekkert lélegt að koma hingað og tapa 3-1
„Frábær áskorun að vera spáð góðu gengi frekar en að vera brandaralið"
Siggi Höskulds: Eina markmið leiksins og vikunnar var að bæta fyrir það
Bjarni: Held ég hafi aldrei hitt hann svona vel
   lau 11. september 2021 17:49
Brynjar Ingi Erluson
Gaui Þórðar: Það er ásetningur að ryðja manninum í burtu
Guðjón Þórðarson og Brynjar Kristmundsson á hliðarlínunni
Guðjón Þórðarson og Brynjar Kristmundsson á hliðarlínunni
Mynd: Raggi Óla
Guðjón Þórðarson, þjálfari Víkings Ólafsvíkur, segir að varnarvinnan hafi verið slök í fyrri hálfleiknum gegn Gróttu er liðið tapaði 5-3 í Lengjudeildinni í dag.

Lestu um leikinn: Víkingur Ó. 3 -  5 Grótta

Grótta komst þremur mörkum yfir á fyrsta hálftímanum áður en þeir bættu við fjórða markinu í upphafi þess síðari. Víkingar komu til baka með tveimur mörkum og gáfu Gróttumönnum leik en þeir náðu svo inn fimmta markinu áður en Víkingar gerðu sárabótarmark undir lokin.

„Við ætluðum að spila 3-5-2. Ætluðum að ýta á þá og loka svæðunum þeirra. Við vissum hvernig þeir myndu leggja upp með spilið og töldum okkur vita það og ætluðum að leggja út með öðrum hætti en það gerðist. Fengum á okkur mark eftir fjórar mínútur."

„Það var búið að leggja út hvernig við ættum að verjast hornunum og einhverjir vildu meina að það að Eli hefði verið tæklaður og hann var reyndar tæklaður og vildu fá aukaspyrnu þá það en ef ekkert dæmt þá er ekkert hægt að stoppa það."

„Annað markið er líka mjög barnaleg varnarvinna og við gefum frá okkur mörkin. Þriðja markið er það sama og við skjótum undan okkur fótinn og ef þú ert að spila þannig ef að menn framkvæma varnarvinnuna með þessum hætti þá áttu ekki von á góðu."

„Að sama skapi vorum við með þrjú eða fjögur úrvalsfæri til að skora á hinum endanum og það var sama framkvæmdin þar fyrir framan markið. Það virðist enginn hafa trú á því sem þeir eru að gera og menn missa hausinn alltof fljótt,"
sagði hann ennfremur.

Guðjón var ósáttur við dómgæsluna í fyrsta og þriðja markinu en hann setur spurningamerki við hvað má og hvað má ekki í Lengjudeildinni.

„Hann er stiginn út og það er ótrúlegt hvað þeim tekst að manna markteiginn og með miklar stympingar án þess að dómarinn skipti sér af því. Það er leyft að hnoðast og keyra í menn þeir sem eru með stöðu en þetta er ekkert annað en aukaspyrna. Það er ásetningur að ryðja manninum í burtu." sagði Guðjón en það má sjá viðtalið í heild sinni hér fyrir neðan.
Slapp
Athugasemdir
banner