Fotbolti.net
08.07.26 - 20:44
Ívan Guðjón Baldursson
Í samstarfi við styrktaraðila

Ivan Provedel til Inter (Staðfest)

Ivan Provedel til Inter (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Inter er búið að festa kaup á Ivan Provedel sem byrjaði síðustu leiktíð sem aðalmarkvörður hjá Lazio.
Hann er 32 ára og átti aðeins eitt ár eftir af samningi þegar Lazio samþykkti að selja hann til Inter fyrir svo lítið sem 3 milljónir evra.

Provedel meiddist illa á öxl í mars síðastliðnum og í hans fjarveru greip hinn efnilegi Edoardo Motta tækifærið á milli stanga Lazio.

Búist er við að Provedel verði búinn að jafna sig af meiðslunum í ágúst eða september. Hann mun berjast við Josep Martínez um byrjunarliðssætið á milli stanga Ítalíumeistaranna.

Hann er annar leikmaðurinn sem gengur til liðs við Inter í upphafi sumars, eftir kaup á hinum bráðefnilega Aleksandar Stankovic.

Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.