Fotbolti.net
10.10.26 - 23:31
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Flóðljósin biluðu og hellirigning í leik hjá Kristófer

Flóðljósin biluðu og hellirigning í leik hjá Kristófer
Canon

Mynd: Reggiana

Leikur Pineto og Reggiana í ítösku C-deildinni var flautaður af eftir allskonar áskoranir sem liðin þurftu að takast á við. Kristófer Jónsson kom inn á sem varamaður hjá Reggiana.

Flóðljósin biluðu en leikurinn gat farið aftur af stað tuttugu mínútum síðar. Þá byrjaði að helliriigna sem endaði með því að dómarinn flautaði leikinn af.
Það var um hálftími eftir af leiknum og eins og staðan er er óljóst hvenær hægt verður að halda leik áfram. Pineto er með 2-0 forystu.

Rosenborg gerði 1-1 jafntefli gegn Sandefjord í norsku deildinni. Bæði lið misstu mann af velli með rautt spjald. Rosenborg er í 5. sæti deildarinnar með 34 stig eftir 22 umferðir. Freyr Alexandersson er þjálfari liðsins.

Daniel Ingi Jóhannesson var í byrjunarliði Kolding sem gerði grátlegt 1-1 jafntefli gegn Hobro í dönsku B-deildinni. Hobro jafnaði metin í uppbótatíma. Kolding er í 9. sæti með níu stig eftir tíu umferðir.

Hörður Björgvin Magnússon var í byrjunarliði Atromitos sem tapaði 2-1 gegn Asteras Tripolis í grísku deildinni. Atromitos er með tvö stig eftir sex umferðir.

Kristian Nökkvi Hlynsson kom inn á snemma í seinni hálfleik í 1-1 jafntefli Twente gegn Sittard í hollensku deildinni. Þetta er fyrsti keppnisleikurinn hans frá því hann meiddist í ágúst.

Willum Þór Willumsson kom inn á undir lokin þegar NEC Nijmegen gerði 1-1 jafntefli gegn Ajax. Twente er í 4. sæti með 17 stig en NEC er í 11. sæti með 9 stig eftir átta umferðir.

Patrik Sigurður Gunnarsson fékk tækifæri hjá Kortrijk í 3-0 tapi gegn Genk í belgísku deildinni. Kortrijk er í 16. sæti með þrjú stig eftir átta umferðir.


Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.