Fotbolti.net
10.10.26 - 22:41
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Óskar Hrafn: Annars verða menn að finna sér eitthvað annað að gera

Auglýsing
Óskar Hrafn: Annars verða menn að finna sér eitthvað annað að gera
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

KR vann sterkan sigur á Fram í kvöld og er með fjögurra stiga forystu í baráttunni um 2. sæti. Fótbolti.net ræddi við Óskar Hrafn Þorvaldsson eftir leikinn.
Lestu um leikinn: Fram 1 - 2 KR
„Við áttum ekkert skilið í þessum leik þannig lagað. En þetta er jafnvel fyrsti leikurinn þar sem að við erum lakari aðilinn og fáum eitthvað út úr leiknum. Við sýnum karakter, við sýnum kannski aðra hlið á okkur, að lið sem eru á þeim stað sem að við erum núna þurfa að geta sýnt," sagði Óskar.

„Stundum smella hlutirnir ekki af mörgum ástæðum og mér fannst við aldrei ná neinum takti í dag sóknarlega en það stendur að við unnum þennan leik. Akkúrat þessi leikur snerist ekki um að rýna alveg bara granít hart í frammistöðuna. Heldur um það að nú erum við með fjögurra stiga forystu á Fram í öðru sætinu og tvær umferðir eftir. Ég held við tökum það bara með okkur inn í laugardagskvöldið."

Óskar var spurður að því hvort landsleikjahléið hafi haft áhrif á frammistöðuna.

„Ég held ekki. Við tökum smá áhættu, spilum mönnum sem eru ekki alveg tilbúnir í leikinn. Ég held að það hafi spilað einhverja rullu. Framarnir eru gott lið og þegar þeir komast á bragðið og þegar þeir komast í takt þá getur verið mjög erfitt að eiga eiga við þá. Þú getur ekki kennt fríinu um. Það er ótrúlega billegt að kenna fríinu um. Við náðum aðeins betur að halda aftur af þeim og halda aðeins niðri boltanum en hún fer ekki í sögubækurnar knattspyrnulega þessi frammistaða, það er alveg ljóst. Karakterinn var frábær.

„Eigum við ekki bara að segja það að það sé þroskamerki? Ég veit ekkert hvað það er. Ég veit bara að liðið mitt sýndi góðan karakter. Við þurftum að þjást stóran hluta leiksins og menn komu sér í gegnum það. Það sjá það allir að Framararnir eiga 30 sentimetra og 10 kíló nánast allir á okkur. Þeir eru stærri og sterkari sem gerir það að verkum að það er alvöru verkefni að verjast þeim inni í teignum og mér fannst við gera það að langstærstum hluta mjög vel."

Óskar segir að það sé mikilvægt að enda eins ofarlega og hægt er.

„Keppnismenn hljóta að vilja enda eins ofarlega og þeir geta. Það er það sem að við höfum að keppa núna. Við erum búinir að missa af möguleikanum að berjast um Íslandsmeistaratitilinn og þá er það bara næsta sæti sem er annað sætið. Það er gríðarlega mikilvægt. Ég átta mig á að það er einhver smá munur á því hvort þú endar í öðru eða þriðja sæti upp á Evrópu á næsta ári en fyrir mér er það gjörsamt aukaatriði. Þú ert menn sem eru keppnismenn, þeir hljóta að stefna að því að enda sem hæst í töflunni. Núna getum við endað í öðru sæti það hlýtur að vera markmið allra, allavegana í KR. Annars verða menn að finna sér eitthvað annað að gera.
Óskar Hrafn: Annars verða menn að finna sér eitthvað annað að gera
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.