Fotbolti.net
11.11.14 - 10:42
Elvar Geir Magnússon
- Pepsi-deildin

Andri Ólafs gerir nýjan samning við ÍBV (Staðfest)

Andri Ólafsson.

Andri Ólafsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Það er gríðarlega ánægjulegt,\" segir Jóhannes Harðarson, þjálfari ÍBV, um þær fréttir að Andri Ólafsson hefur skrifað undir nýjan þriggja ára samning við félagið.

Andri er uppalinn hjá félaginu en skipti í KR sumarið 2013. Meiðsli komu í veg fyrir að hann gæti spilað með KR og lék hann fyrri hluta tímabilsins í ár með Grindavík áður en hann skipti aftur yfir í ÍBV.
Andri getur bæði spilað í vörn og á miðju en hann reyndist Eyjaliðinu mikilvægur í fallbaráttunni á liðnu sumri þar sem liðinu tókst að bjarga sér frá falli.

„Andri er mjög öflugur leikmaður sem á eftir að spila stórt hlutverk fyrir okkur. Það er mjög ánægjulegt að hann hafi framlengt,\" segir Jóhannes.

„Leikmannamálin eru í vinnslu hjá okkur og við erum að skoða okkar mál. Það gæti eitthvað dottið inn hjá okkur innan fárra daga en það er ótímabært að nefna einhver nöfn. Það eru hlutir í gangi sem við fáum vonandi að vita meira um á næstu dögum eða vikum.\"

Ekki borist tilboð í Þórarinn Inga
Miðvörðurinn Brynjar Gauti Guðjónsson er á leið út til reynslu hjá Silkeborg og þá hefur Þórarinn Ingi Valdimarsson sett stefnuna á að komast út. Sögur hafa verið í gangi um að FH vilji fá Þórarinn.

„Þórarinn er með samning út næsta ár hjá okkur. Það er ekkert nýtt að frétta þar og ég anda rólega yfir þessu. Meðan ekkert gerist þá er hann leikmaður ÍBV. Það hafa engin tilboð borist inn til félagsins, hvorki frá FH né öðrum félögum,\" segir Jóhannes Harðarson.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.