11.11.14 - 09:29
Elvar Geir Magnússon
Magni Fannberg þjálfari Brommapojkarna (Staðfest)

Magni er nú að funda með leikmannahópnum.

Mynd: Brommapojkarna

Magni er nú að funda með leikmannahópnum.

Mynd: Brommapojkarna
Magni Fannberg hefur skrifað undir tveggja ára samning við Brommapojkarna um þjálfun aðalliðs félagsins. BP féll úr sænsku úrvalsdeildinni á liðnu tímabili.
Magni er 35 ára og hefur þjálfað yngri lið félagsins með góðum árangri undanfarin ár.
Magni er 35 ára og hefur þjálfað yngri lið félagsins með góðum árangri undanfarin ár.
„Það er vissulega erfitt að taka við liði sem hefur fallið um deild því slíku fylgir alltaf tekjutap og sparnaður. Hér eru margir með lausa samninga og við erum ekki með nema 12-13 leikmenn klára í augnablikinu, en stefnan er að byggja upp á ungum og uppöldum leikmönnum,\" segir Magni við mbl.is.
Magni er fyrrum þjálfari Fjarðabyggðar í 1. deildinni en hann hefur einnig starfað við þjálfun hjá Grindavík, Val og HK.
Smelltu hér til að sjá viðtalið við Magna af mbl.is.
Magni er fyrrum þjálfari Fjarðabyggðar í 1. deildinni en hann hefur einnig starfað við þjálfun hjá Grindavík, Val og HK.
Smelltu hér til að sjá viðtalið við Magna af mbl.is.
