Cristiano Ronaldo, leikmaður Juventus, var farinn heim til sín áður en leik liðsins gegn AC Milan lauk í gærkvöldi.
Ronaldo var tekinn af velli á 55. mínútu en Paulo Dybala sem kom inn á fyrir hann skoraði eina mark leiksins.
Ronaldo var ósáttur við skiptinguna en hann lét Maurizio Sarri, þjálfara Juventus, heyra það áður en hann rauk inn í klefa. Ronaldo var líka tekinn af velli gegn Lokomotiv Moskvu í Meistaradeildinni í vikunni.

Sky á Ítalíu segir að Ronaldo hafi sést keyra heim til sín þegar ennþá voru þrjár mínútur eftir af leiknum.
Sarri sagði eftir leikinn í gærkvöldi að Ronaldo sé að glíma við hnémeiðsli sem séu að trufla. Ronaldo virtist hins vegar ekki vera sáttur með skiptinguna.
Athugasemdir