Fotbolti.net
11.11.20 - 06:00
Aksentije Milisic

Sigurjón áfram hjá Grindavík (Staðfest)

Sigurjón áfram hjá Grindavík (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sigurjón Rúnarsson hefur skrifað undir nýjan samning við Grindavík og gildir hann til tveggja ára.
Hinn tvítugi Sigurjón er uppalinn hjá Grindavík en hann á að baki 53 leiki fyrir félagið. Hann skoraði tvö mörk fyrir liðið í sumar í Lengjudeildinni.

Grindavík tilkynnti þetta í gær en þá kom jafnframt fram að fleiri fréttir frá félaginu er að vænta á næstu dögum.

„Það er gleðiefni að Sigurjón verði áfram í herbúðum Grindavíkur. Þetta er leikmaður sem býr yfir miklum hæfileikum og getur svo sannarlega orðið frábær miðvörður þegar fram líða stundir. Hann hefur tekið miklum framförum í sumar, er feikilega vinnusamur og hefur mikið og stórt Grindavíkurhjarta,“ sagði Sigurbjörn Hreiðarsson, þjálfari Grindavikur, á heimasíðu Grindavíkur.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.