11.11.26 - 12:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Markahæstur í Hollandi og aldrei spilað betur
Auglýsing

Mynd: EPA

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd: EPA

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd: EPA

Brynjólfur Andersen Willumsson kemur heitur inn í landsliðsverkefnið en hann hefur skorað fimm mörk í síðustu fimm deildarleikjum Groningen í hollensku úrvalsdeildinni og lagt upp eitt mark.
Framundan eru leikir hjá landsliðinu í Þjóðadeildinni, fyrst leikur gegn Búlgaríu ytra og svo heimaleikur gegn Lúxemborg. Ísland er á toppi riðilsins með átta stig eftir fyrstu fjóra leikina.
Brynjófur ræddi við Fótbolta.net á La Finca hótelinu á Spáni.

„Þetta eru tveir spennandi leikir, mér líst vel á þetta."
„Við stefnum á sex stig, förum í alla leiki til að vinna þá, byrjum á að fókusa á fyrri leikinn og að taka þrjú stig þar. Svo höldum við áfram frá því."
Brynjólfur er einn af fjórum markahæstu leikmönnum hollensku úrvalsdeildarinnar en samkeppnin í landsliðinu er ansi hörð. Andri Lucas og Orri Steinn eru sjálfir að skora mjög reglulega um þessar mundir og eru fyrstu kostir í liðið. Brynjólfur var spurður út í sína stöðu í landsliðinu.
„Það er eiginlega ótrúlegt," segir Brynjólfur og brosir. „Þeir eru að spila líka mjög vel með félagsliðum sínum, eru báðir á eldi og eru að skora reglulega. Þeir eru líka búnir að gera vel með landsliðinu. Þetta er bara samkeppni og maður þarf að berjast fyrir sinni stöðu; reyna vera klár þegar maður fær mínútur. Það eru einhvern veginn allir að spila mjög vel."
„Algjörlega, ég myndi ekki segja að það væri einhver einn sem ætti skilið að fara úr liðinu eða að annar eigi að koma inn. Það eru einhvern veginn allir búnir að vera standa sig mjög vel."
„Ég er alltaf klár (þegar kallið kemur)," segir Brynjólfur sem kom inn á í tveimur leikjum í síðasta landsliðsverkefni.
Mjög fagmannlega gert
Hann var spurður hvernig hans upplifun af fundi landsliðsfyrirliðans í síðasta landsleikjaverkefni. Orri Steinn kallaði leikmenn saman á fund eftir agabrot í hópnum.
„Auðvitað var þetta sérstakt, en við ræddum þetta bara, mjög fagmannlega gert og búið að slútta þessu. Núna þurfum við að horfa fram veginn og reyna svara þessu inn á vellinum, þétta okkur saman sem hópur."
Markahæstur í deildinni
„Það gengur vel, ég er mjög ánægður í Groningen, líður mjög vel. Það hjálpar líka til inni á vellinum og ég er að fá að spila alla leiki. Það skemmir ekki fyrir þegar mörkin eru að koma."
Ertu að spila þinn besta bolta á ferlinum?
„Það er rétt að segja það. Ég byrjaði síðasta tímabil fínt, en svo fór það að dala aðeins. Núna er ég búinn að halda lengra „rönni" þannig ég myndi halda að þetta sé örugglega minn besti bolti á ferlinum."