Fotbolti.net
11.12.14 - 16:44
Magnús Már Einarsson

Kristinn Steindórsson til Columbus Crew (Staðfest)

Kristinn Steindórsson.

Kristinn Steindórsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kristinn Steindórsson hefur gengið til liðs við Columbus Crew í bandarísku MLS-deildinni en félagið staðfesti þetta nú rétt í þessu.

Vísir greinir frá því að samningurinn sé til fjögurra ára.

Kristinn hefur undanfarin þrjú tímabil spilað með Halmstad í Svíþjóð en samningur hans þar var að renna út.
,,Við erum mjög ánægðir með að fá Kristinn í hópinn,\" sagði Gregg Berhalter þjálfari Columbus Crew.

,,Við höfum fylgst með honum í talsverðan tíma í Svíþjóð og teljum að hann geti hjálpað okkur á kantinum á næsta tímabili.\"

Félög á Norðurlöndunum, Þýskalandi og víðar sýndu Kristni áhuga en nú er ljóst að hann leikur í Bandaríkjunum á næstunni.

Á nýliðnu tímabili endaði Columbus Crew í þriðja sæti í Austurdeild MLS-deildarinnar.

Með liðinu spila meðal annars Emmanuel Pogatetz og Kei Kamara fyrrum leikmenn Middlesbrough sem og argentínski framherjinn Federico Higuain en hann er bróðir Gonzalo Higuain.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.