11.12.14 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Leo Suarez til Villarreal (Staðfest)

Leonardo Suarez hefur verið að gera frábæra hluti með yngri landsliðum Argentínu.

Mynd: Google

Villarreal er búið að kaupa miðjumanninn Leonardo Suarez frá argentínska félaginu Boca Juniors.
Miðjumaðurinn, sem er kallaður Leo, er aðeins 18 ára gamall og er argentínskur. Hann kemur til Villarreal á tvær milljónir evra, sem eru 308 milljónir króna.

Félagið er búið að staðfesta kaupin og að leikmaðurinn ungi sé búinn að skrifa undir fimm og hálfs árs samning, til 30. júní 2020.
Suarez stóðst læknisskoðun en kemur ekki til félagsins fyrr en í febrúar á næsta ári og þá verður hann aðeins gjaldgengur með varaliði Villarreal.
Suarez er talinn gríðarlegt efni og hefur skorað 19 mörk í 22 leikjum með U17 ára landsliði Argentínu.