Fotbolti.net
11.12.20 - 18:11
Victor Pálsson

Beitir framlengir við KR (Staðfest)

Beitir framlengir við KR (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Markvörðurinn Beitir Ólafsson hefur skrifað undir nýjan samning við KR í Pepsi Max deild karla en þetta var staðfest í kvöld.
Beitir hefur reynst KR-ingum mjög öflugur í rammanum en hann kom nokkuð óvænt frá Keflavík fyrir rúmlega þremur árum síðan.

Hann hefur staðið vaktina með mikilli prýði síðan þá og verið aðalmarkvörður liðsins. KR fagnaði sigri í deild árið 2019 með hann á milli stanganna.

KR-ingar framlengdu samning markvarðarins til ársins 2022 og er hann því samningsbundinn næstu tvö tímabil.

Beitir er fæddur árið 1986 og hefur spilað alls 251 leik í meistaraflokki með HK, Ými, KFK, Keflavík og KR.

Tilkynning KR:

Beitir Ólafsson hefur framlengt samning sinn við KR til 2 ára eða út tímabilið 2022.

Beitir kom til KR sumarið 2017 og hefur átt fast sæti í byrjunarliðinu síðan þá. Beitir hefur leikið 75 leiki fyrir KR í Íslandsmóti og 7 leiki í bikarkeppni KSÍ.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.