Fotbolti.net
12.01.15 - 19:02
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalska deildin

Ballon d\'Or: Ronaldo bestur í heimi (Staðfest)

Ronaldo með gullknöttinn góða.

Ronaldo með gullknöttinn góða.

Canon

Mynd: Getty Images

Portúgalski framherjinn Cristiano Ronaldo hefur verið valinn besti leikmaður ársins 2014 af Alþjóða knattspynursambandinu FIFA.

Ronaldo átti magnað ár þar sem hann skoraði 61 mark í 60 leikjum og lagði þar að auki 22 mörk upp.
Í treyju Real Madrid skoraði Ronaldo 56 mörk í 51 leik og bætti 5 mörkum við í 9 landsleikjum með Portúgal.

Með Real vann Ronaldo Meistaradeildina og spænska Konungsbikarinn á síðasta tímabili og er félagið búið að vera á frábæru róli á þessu tímabili.

Ronaldo vann eftir harða samkeppni frá þýska markverðinum Manuel Neuer og Argentínumanninum knáa Lionel Messi.

Cristiano Ronaldo hlaut 37.66% allra atkvæða. Lionel Messi 15.76% og Manuel Neuer 15.72%.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.