Fotbolti.net
12.01.15 - 13:30
Magnús Már Einarsson

Heiða Dröfn í Val (Staðfest)

Heiða Dröfn í Val (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
Heiða Dröfn Antonsdóttir hefur gengið til liðs við uppeldisfélag sitt Val frá FH.

Heiða Dröfn er 23 ára miðjumaður en hún hefur undanfarin ár leikið með Fylki, í Svíþjóð og með liði FH.

Heiða hefur þrátt fyrir ungan aldur spilað 80 leiki í efstu deild en hún var fyrirliði FH síðastliðið sumar.
,,Heimkoma Heiðu Drafnar er mikið gleðiefni og býður hana hjartanlega velkomna heim,\" segir á heimasíðu Vals.

Ragnar Vignir tók að sjálfsögðu viðtal við Heiðu fyrir heimasíðu Vals en það má sjá hér að neðan.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.