12.01.15 - 15:19
Elvar Geir Magnússon
Markvörðurinn Thomas Nielsen í Víking (Staðfest)

Víkingar hafa fengið nýjan markvörð.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Víkingar hafa fengið nýjan markvörð.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Víkingur Reykjavík hefur gengið frá samningi við danska markvörðinn Thomas Nielsen sem mun fylla skarð Ingvars Kale sem kominn er til Vals.
Heimir Gunnlaugsson, formaður meistaraflokksráðs Víkings, staðfesti þetta við Vísi.

Nielsen kemur til landsins í dag ásamt framherjanum Rolf Toft sem Víkingar sömdu nýlega við en Toft vakti athygli fyrir frammistöðu sína með Stjörnunni í fyrra.
Nielsen er 22 ára gamall og náði að heilla Víkinga þegar hann æfði með liðinu fyrir áramót. Hann hefur síðustu ár leikið í neðri deildum Danmerkur.
Þar sem Nielsen er að koma að utan fær hann ekki leikheimild fyrr en 20. febrúar og missir því af öllum leikjum Víkings í Reykjavíkurmótinu og fyrsta leik liðsins í Lengjubikarnum.
Víkingar stóðu sig vel í Pepsi-deildinni í fyrra og náðu Evrópusæti.