Fotbolti.net
12.01.15 - 15:30
Elvar Geir Magnússon

Matija Nastasic lánaður til Schalke (Staðfest)

Nastasic fær tæklingu frá Ronaldo.

Nastasic fær tæklingu frá Ronaldo.

Canon

Mynd: Getty Images

Kvennalandslið
Manchester City hefur samþykkt að lána varnarmanninn Matija Nastasic til Schalke í Þýskalandi til loka leiktíðar.

Nastasic er 21 árs serbneskur landsliðsmaður sem kom til City 2012 þegar Roberto Mancini var stjóri.
Hann hefur ekki náð að festa sig í sessi undir stjórn Manuel Pellegrini og ekki spilað í deildinni á þessu tímabili.

Síðasti leikur hans fyrir City var 3-0 tapið gegn Arsenal í baráttunni um Samfélagsskjöldinn í ágúst en hann lék aðeins 11 byrjunarliðsleiki í deildinni síðasta tímabil.

Schalke fær forkaupsrétt á Nastasic en liðið er í fimmta sæti þýsku úrvalsdeildarinnar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.