AC Milan og Torino eigast við í 16-liða úrslitum ítalska bikarsins í kvöld en Zlatan Ibrahimovic gæti snúið aftur í byrjunarlið Milan.
Zlatan hefur verið meiddur undanfarnar vikur en var þó mættur á bekkinn í 2-0 sigrinum á Torino um helgina. Hann spilaði þar fimm mínútur en gæti snúið aftur í byrjunarliðið er liðin eigast við í bikarnum í kvöld.
Milan hefur spilað afar vel á þessu tímabili og er á toppnum í deildinni en liðið ætlar sér stóra hluti í bikarnum.
Leikur dagsins:
19:45 Milan - Torino
Athugasemdir