12.02.15 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Ariedo Braida yfirmaður íþróttamála hjá Barcelona (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Ariedo Braida gengur til liðs við Barcelona í dag samkvæmt ítölskum og spænskum fréttamiðlum.
Braida var á Camp Nou og fylgdist með Barcelona leggja Villarreal af velli með þremur mörkum gegn einu í gærkvöldi.

,,Hann mun skrifa undir samning og ég er viss um að hann fullkomni frábært teymi ásamt Carles Rexach, Jordi Mestre og Javier Bordas,\" sagði Josep Maria Bartomeu, forseti Barca.
,,Þeir fjórir eiga að sjá um að skipuleggja næsta tímabil hjá félaginu.\"
Braida var forstöðumaður AC Milan frá 1986 til 2002 en varð svo að yfirmanni íþróttamála árið 2002 og hætti störfum í desember 2013.
Hjá Barcelona verður Braida yfirmaður íþróttamála með sérstakri áherslu á alþjóðlegum viðskiptum.