12.02.15 - 14:20
Hafliði Breiðfjörð
Hazard með nýjan samning við Chelsea (Staðfest)

Hazard verður áfram hjá Chelsea í rúm fimm ár.

Mynd: Getty Images

Chelsea staðfesti í dag að belgíski framherjinn Eden Hazard hafi skrifað undir nýjan fimm og hálfs árs samning við félagið.
Hazard sem er 24 ára gamall kom til félagsins frá Lille í Frakklandi á 32 milljónir punda árið 2012. Hann hefur skorað 13 mörk í 36 leikjum á tímabilinu.
,,Síðan ég kom hingað árið 2012 hefur mér alltaf liðið vel og félagið hefur stutt mig mikið,\" sagði Hazard við þetta tilefni.
Jose Mourinho knattspyrnustjóri félagsins var að vonum ánægður og sagði: ,,Hann er þegar top leikmaður og hefur bætt sig helling. Hann er enn mjög ungur og getur orðið sá besti.\"
Hazard hefur spilað 147 leiki með Chelsea og skorað í þeim 47 mörk. Hann var í liði Belga sem komst í fjórðungsúrslit á Heimsmeistaramótinu í Brasilíu í fyrrasumar.

Heimild: BBC