12.02.15 - 19:00
Brynjar Ingi Erluson
Heiðar Geir í Brage (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
IK Brage í sænsku C-deildinni hefur fengið vænan liðsstyrk fyrir komandi leiktíð en Heiðar Geir Júlíusson er kominn frá Camdridge City.
Heiðar, sem er 27 ára gamall, er uppalinn í Fram en hann á að baki 101 leik í deild- og bikar fyrir félagið og þá gerði hann 11 mörk í þeim leikjum.
Hann hefur komið víða við á ferlinum en hann fór út í atvinnumennsku til Hammarby í Svíþjóð en sneri heim ári síðar. Fyrir tímabilið árið 2010 samdi hann svo við Ängelholms FF í sænsku fyrstu deildinni og gerði þar góða hluti.
Hann lék með liðinu í þrjú ár og komst næstum því upp um deild með því árið 2011 en liðið komst í umspil um sæti í efstu deild.
Heiðar lék því næst með Fylki hálft keppnistímabil fyrir tveimur árum áður en hann fór til IFK Uddevalla í Svíþjóð. Hann kom aftur til landsins á síðasta ári og samdi við Þrótt en stuttu síðar var hann farinn á láni til Ham/Kam í Noregi.
Síðasta ævintýri hans var með Camdridge City á Englandi en liðið leikur í sjöundu efstu deild þar í landi. Hann er nú búinn að semja við Brage sem leikur í sænsku C-deildinni og kveðst spenntur fyrir því að spila með liðnu.
,,Það hafa allir tekið vel á móti mér hérna og maður er að kynnast strákunum en ég held að þetta eigi eftir að vera skemmtilegt,\" sagði Heiðar við heimasíðu Brage.