12.02.15 - 17:23
Magnús Már Einarsson
Hollenskur markvörður til Keflvíkinga (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Keflavík hefur samið við hollenska markvörðinn Richard Arends en hann var á reynslu hjá félaginu á dögunum.
Sænski markvörðurinn Jonas Sandqvist verður ekki áfram hjá Keflavík en hinn ungi Sindri Kristinn Ólafsson hefur varið mark liðsins í vetur. Arends mun síðan koma til landsins á morgun.
,,Hann er tæknilega mjög góður markmaður og ég held að hann passi vel í samsetninguna á vörninni sem við erum að setja saman,\" sagði Kristján Guðmundsson þjálfari Keflavíkur við Fótbolta.net í dag.
,,Þetta er góður markvörður til að vera með Sindra sem er að taka góð skref og verður vonandi framtíðarmarkvörður hjá okkur.\"
Arends er 24 ára gamall en hann leikið 72 leiki með FC Oss í næstefstu deild í Hollandi.
Kristján segir að Keflvíkingar ætli að styrkja leikmannahópinn meira fyrir átök sumarsins.
,,Við erum að skoða í kringum og ætlum styrkja leikmannahópinn. Við höfum augastað á leikmönnum bæði hér heima og úti,\" sagði Kristján.