12.02.15 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Mudingayi til Cesena (Staðfest)

Mudingayi var reglulegur byrjunarliðsmaður hjá Inter fyrir tveimur árum.

Mynd: Getty Images

Mudingayi var reglulegur byrjunarliðsmaður hjá Inter fyrir tveimur árum.

Mynd: Getty Images
Miðjumaðurinn reyndi Gaby Mudingayi verður hjá Herði Björgvini Magnússyni og félögum í Cesena út tímabilið.
Mudingayi er varnartengiliður sem á 17 landsleiki að baki fyrir Belgíu og var fenginn til Cesena til að hjálpa liðinu í fallbaráttu efstu deildar á Ítalíu.
Mudingayi er varnartengiliður sem á 17 landsleiki að baki fyrir Belgíu og var fenginn til Cesena til að hjálpa liðinu í fallbaráttu efstu deildar á Ítalíu.
Mudingayi, sem er 33 ára gamall, hefur leikið fyrir Lazio, Inter og Bologna á síðustu árum og var samningsbundinn spænska félaginu Elche sem gat ekki greitt honum laun og þurfti því að rifta samningnum við leikmanninn 3. febrúar.
Miðjumaðurinn skrifaði undir samning við Cesena sem gildir út tímabilið og hefur valið sér treyju númer 26.
Miðjumaðurinn skrifaði undir samning við Cesena sem gildir út tímabilið og hefur valið sér treyju númer 26.
