Fotbolti.net
12.02.15 - 13:00
Magnús Már Einarsson

Sigurður Eyberg í Selfoss (Staðfest)

#Eybergvaktin

#Eybergvaktin

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Kristján Orri Jóhannsson

Varnarmaðurinn Sigurður Eyberg Guðlaugsson hefur gengið til liðs við uppeldisfélag sitt Selfoss á nýjan leik.

Síðastliðið sumar spilaði Sigurður með Ægismönnum í 2. deildinni.
Sumarið 2013 lék hann einnig með Hamar síðari hluta sumars í 2. deild.

Undanfarnar vikur hefur Sigurður æft með Selfyssingum og spilað í Fótbolta.net mótinu.

Þessi 24 ára gamli leikmaður á að baki 91 deildar og bikarleik með Selfyssingum en hann hefur skorað tvö mörk í þeim.

Selfyssingar hefja leik í Lengjubikarnum á laugardag þegar þeir mæta Gróttu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.