Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   mið 12. febrúar 2020 20:15
Aksentije Milisic
Barcelona og Bayern Munchen fylgjast með varnarmanni Leipzig
Upamecano og Werner.
Upamecano og Werner.
Mynd: Getty Images
Stórveldin Barcelona og Bayern Munchen eru sögð á meðal þeirra liða sem hafa áhuga á að fá Dayot Upamecano, varnarmann RB Leipzig, næsta sumar.

Arsenal reyndi að fá Upamecano fyrir þetta tímabil en liðið náði ekki samkomulagi við Leipzig og því varð ekkert úr félagsskiptunum.

Upamecano hefur spilað 72 leiki fyrir Leipzig en hann kom til liðsins frá Red Bull Salzburg. Hann á leiki fyrir öll yngri landslið Frakklands og er hann stór og stæðilegur miðvörður.

Sagt er að Upamecano vilji þó helst fara í ensku úrvalsdeildina og að það sé hans draumur.
Athugasemdir
banner