Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mið 12. febrúar 2020 10:58
Elvar Geir Magnússon
Mun Liverpool kaupa Werner á 50 milljónir punda?
Timo Werner spilar fyrir RB Leipzig.
Timo Werner spilar fyrir RB Leipzig.
Mynd: Getty Images
Þýskir fjölmiðlar segja að Jurgen Klopp ætli að bæta við sóknarmöguleika sína í sumar þrátt fyrir að vera með Sadio Mane, Mohamed Salah og Roberto Firmino í sínum röðum.

Bild segir að Liverpool telji Werner hinn fullkomna kost til að koma inn í sóknarlínu liðsins.

Blaðið segir að þessi 23 ára sóknarmaður sé með riftunarákvæði upp á 50,5 milljónir punda.

Werner, sem hefur lengi verið orðaður við Liverpool, er með 26 mörk í 34 leikjum fyrir RB Leipzig og Þýskaland.

RB Leipzig er í öðru sæti þýsku deildarinnar, aðeins stigi á eftir Bayern München.

Werner verður í eldlínunni með RB Leipzig gegn Tottenham í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu.
Athugasemdir
banner