Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mið 12. febrúar 2020 14:54
Elvar Geir Magnússon
Sky: Sancho fer frá Dortmund í sumar og Man Utd vill fá hann
Jadon Sancho.
Jadon Sancho.
Mynd: Getty Images
Sky í Þýskalandi fullyrðir að Jadon Sancho muni yfirgefa Borussia Dortmund næsta sumar og að Manchester United vilji fá hann á Old Trafford.

Sancho verður tvítugur í næsta mánuði en hann var í unglingastarfi Manchester City áður en hann hélt til Dortmund.

Hann er á sínu öðru tímabili í Þýskalandi en hann hefur leikið frábærlega í Bundesligunni, verið duglegur við að skora og legga upp.

„Hann fer frá Dortmund, það er klárt. Óvíst er í hvaða félag hann mun fara," segir Jesco von Eichmann, fréttamaður Sky.

„Michael Zorc, yfirmaður íþróttamála hjá Borussia Dortmund, sagði í viðtali í síðustu viku að hann hefði ekki fengið neitt tilboð í Jadon Sancho. Þegar ég spurði hann aftur í dag þá brosti hann bara."

Sky Sports News hefur leitað eftir viðbrögðum frá Manchester United og bíður eftir svari.


Athugasemdir
banner
banner