Fotbolti.net
12.02.26 - 13:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Van Dijk: Auðvitað vil ég að hann verði áfram

Van Dijk: Auðvitað vil ég að hann verði áfram
Canon

Mynd: EPA

Virgil van Dijk, fyrirliði Liverpool, vill að Ibrahima Konate verði áfram hjá félaginu. Þeir spila alla jafnan saman í hjarta varnarinnar.

Konate á innan við hálft ár eftir af samningi sínum og hefur verið sterklega orðaður við Real Madrid.
England: Van Dijk hetja Liverpool
TENGT EFNI

England: Van Dijk hetja Liverpool

„Við erum vinir, við tölum um allt, þetta er ferli. Sjáum hvað kemur út úr því. Þetta er aldrei svo auðvelt að það er hægt að segja: græið þetta bara," segir Van Dijk.

„Auðvitað vil ég að hann verði áfram, hann er mikilvægur hlekkur í liðinu, og líka utan vallar."

„Hann er einn af leiðtogunum, hann er að mínu mati heimsklassamiðvörður. Ég get bara gert takmarkaða hluti hvað framhaldið varðar. Þetta er í höndum félagsins, umboðsmannsins og hans sjálfs. Sjáum til hvað kemur úr því,"
sagði Van Dijk eftir sigurinn á Sunderland í gær.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.