12.03.15 - 18:27
Hafliði Breiðfjörð
Ismar Tandir í Breiðablik (Staðfest)

Arnar Grétarsson þjálfari Breiðabliks og Ismar Tandir.

Mynd: Breiðablik - Kristó

Breiðablik tilkynnti í kvöld að bosníski U21 árs landsliðsmaðurinn Ismar Tandir sé genginn í raðir félagsins.
Tandir gerði tveggja ára samning við Breiðablik en hann hefur æft með liðinu undanfarnar tvær vikur.

Ismar sem 20 ára gamall er 196 cm hár framherji. Ismar, gjarnan kallaður \"Izzy\", er fæddur í Þýskalandi en ólst upp í Bandaríkjunum. Hann hefur meðal annars verið á mála hjá yngri liðum Red Bull og varaliði Sochoux í Frakklandi.
Ismar hefur spilað með öllum yngri landsliðum Bosníu enda eru foreldrar hans þaðan. Hann er stór og sterkur og verður gaman að sjá hvernig hann á eftir að standa sig með Blikaliðinu.
Hann er fjórði leikmaðurinn sem Breiðablik fær til liðs við sig í vetur, áður komu Arnþór Ari Atlason frá Fram, Kári Ársælsson frá BÍ/Bolungarvík og Ósvald Jarl Traustason frá Fram. Þá sneru Páll Olgeir Þorsteinsson og Guðmundur Friðriksson til baka úr láni hjá Víkingi og Selfossi.
Blikar hafa misst fimm leikmenn, þá Árna Vilhjálmsson til Lilleström, Elfar Árna Aðalsteinsson í KA, Finn Orra Margeirsson í FH og þaðan í Lilleström, Tómas Óla Garðarsson í Val og Jordan Halsman verður ekki áfram með þeim.