12.03.17 - 17:09
Kristófer Kristjánsson
Shakespeare stýrir Leicester út tímabilið (Staðfest)

Craig Shakespeare stýrir Leicester út tímabilið

Mynd: Getty Images

Craig Shakespeare hefur verið ráðinn knattspyrnustjóri Leicester út tímabilið en þessi 53 ára gamli Englendingur hefur verið við stjórnvölin til bráðabirgða síðan Claudio Raniero var látinn taka poka sinn 23. febrúar.
Eftir að hafa unnið ensku úrvalsdeildina var Ranieri látinn fara níu mánuðum síðar en Leicester var í frjálsu falli í úrvalsdeildinni.
Craig Shakespeare hefur hinsvegar tekist að vinna báða leiki sína til þessa, gegn Liverpool og Hull City, og hefur honum nú verið gefið starfið allavega þangað til í sumar.
Varaformaður Leicester, Aiyawatt Srivaddhanaprabha, sagði eftirfarandi í yfirlýsingu frá félaginu:
„Við vissum að liðið væri í góðum höndum þegar við báðum hann [Shakespeare] um að taka við fyrir tveimur vikum síðan. Hann hefur sýnt þá leiðtogahæfileika og jákvæðni sem við vonuðumst til að þessi breyting myndi færa okkur og hefur honum tekist að vinna tvo mikilvæga leiki undir mikilli pressu.\"
Leicester tekur á móti Sevilla á þriðjudaginn í öðrum leik liðanna í 16 liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu en fyrri leikurinn fór 2-1 á Spáni.