12.03.17 - 21:01
Bjarni Þórarinn Hallfreðsson
Steve McClaren rekinn frá Derby (Staðfest)

Steve McClaren hefur stýrt Derby í síðasta sinn, í bili allavega

Mynd: Getty Images

Steve McClaren hefur verið rekinn sem knattspyrnustjóri Derby í Championship deildinni en í tilkynningu frá félaginu er það vegna slæms gengis og lélegs starfsanda.
McClaren hefur komið víða við á þjálfaraferli sínum en hann var landsliðsþjálfari Englands frá 2006 til 2007 og þá hefur hann einnig þjálfað Newcastle og Nottingham Forest.
Þetta er í annað skiptið sem McClaren er rekinn frá Derby en hann var einnig rekinn frá félaginu árið 2015.
McClaren tók við Derby í október en liðið er í 10. sæti deildarinnar, tíu stigum frá umspilssæti þegar níu leikir eru eftir af tímabilinu.
Derby hefur aðeins unnið einn af síðustu níu leikjum sínum og kornið sem fyllti mælinn var 3-0 tap gegn Brighton á föstudag.