Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 12. mars 2020 20:53
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Benjamin Mendy kominn í sóttkví
Mynd: Getty Images
Benjamin Mendy, varnarmaður Manchester City, er kominn í sóttkví.

Meðlimur í fjölskyldu Mendy hefur verið prófaður vegna kórónaveirunnar, sá meðlimur sýndi einkenni kórónaveirunnar. Mendy mun ekki mæta á æfingasvæði City þar til að búið er að útiloka þann möguleika að hann sé smitaður.

Sjúkraliðar mættu heim til Mendy í dag og franski landsliðsmaðurinn verður í einangrun þangað til niðurstöður úr prófunum fást.

Manchester City á að spila næst gegn Burnley á laugardaginn.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner