Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 12. mars 2020 08:30
Ívan Guðjón Baldursson
Rugani hvetur fólk til að vara sig: Vírusinn gerir engan greinarmun
Mynd: Getty Images
Daniele Rugani, varnarmaður Juventus, er fyrsti leikmaður Serie A til að vera greindur með kóróna veiruna.

Leikmenn og starfslið Juventus og Inter eru í sóttkví, en Rugani var í leikmannahópi Juve sem lagði Inter að velli um síðustu helgi.

Rugani hefur tjáð sig úr einangruninni og hvetur hann fólk til að virða reglur og forðast smit.

„Já, ég er með kóróna veiruna. Ekki örvænta - mér líður vel. Ég vil hvetja alla til að virða reglurnar því þessi vírus gerir engan greinarmun!" sagði Rugani.

„Gerum það fyrir sjálfa okkur, ástvini og aðra í kringum okkur."
Athugasemdir
banner