Antonin Kinsky, markvörður Tottenham, hefur verið mikið á milli tannanna á fólki eftir 5-2 tap liðsins gegn Atletico Madrid í Meistaradeildinni í vikunni.
Hann fékk tækifæri í byrjunarliðinu en átti arfaslakan leik og Igor Tudor ákvað að taka hann af velli eftir rúmlega stundafjórðung þegar staðan var orðin 3-0.
Hann fékk tækifæri í byrjunarliðinu en átti arfaslakan leik og Igor Tudor ákvað að taka hann af velli eftir rúmlega stundafjórðung þegar staðan var orðin 3-0.
Margir sendu honum skilaboð eftir leikinn og Thibaut Courtois, markvörður Real Madrid, sem er talinn einn sá besti í heimi var einn af þeim sem hughreystu hann.
„Það var erfitt að horfa á þetta. Ég sendi honum einkaskilaboð, ég gerði líka mistök hjá Atletico og Chelsea. Ég fékk ikla gagnrýni þegar Messi klobbaði mig tvisvar. Ég sagði við hann að líta á þetta sem lærdóm. Hann er hæfileikaríkur og þarf að halda áfram að leggja hart að sér," sagði Courtois.
Athugasemdir


