Robinson, Tonali og Iraola orðaðir við Man Utd - White á förum frá Arsenal? - Rudiger og Kolo Muani til Juve?
   fim 12. mars 2026 08:00
Ívan Guðjón Baldursson
Kinský þakkaði stuðningsfólki fyrir kveðjurnar
Mynd: Antonin Kinsky / Instagram
Tékkneski markvörðurinn Antonín Kinský vill eflaust gleyma þriðjudagskvöldinu sem fyrst eða í það minnsta gera allt í sínu valdi til að leikurinn endurtaki sig ekki í framtíðinni.

Hann fékk sjaldgæft tækifæri í byrjunarliðinu hjá Tottenham á erfiðum útivelli Atlético Madrid í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar og átti hörmulegan leik.

Hann gaf Atlético tvö mörk og var skipt af velli eftir 17 mínútur, þegar staðan var orðin 3-0 fyrir Atlético. Peter Schmeichel og fleiri sparkspekingar gagnrýndu Igor Tudor þjálfara Tottenham harkalega fyrir að skipta Kinský af velli og töldu hann mögulega hafa eyðilagt feril markmannsins með þeirri ákvörðun. Fótbolti snýst að stórum hluta um sjálfstraust og svona frammistaða getur farið illa með menn ef þeir fá ekki tækifæri til að bæta upp fyrir mistökin.

   11.03.2026 10:56
„Kinsky fékk sautján mínútur, Tudor ætti að fá fjóra leiki“


Kinský hefur fengið mikinn stuðning frá fótboltaheiminum eftir þetta atvik. David de Gea, fyrrum markvörður Manchester United og spænska landsliðsins sem leikur hjá Fiorentina í dag, sendi honum skilaboð til að hughreysta hann og gerði Thibaut Courtois, markvörður Real Madrid og belgíska landsliðsins sem er af mörgum talinn vera einn af allra bestu markvörðum heims, slíkt hið sama.

Kinský er búinn að fá mikið af stuðningsskilaboðum í gegnum samfélagsmiðla og birti hann færslu í Instagram Story í gær þar sem hann þakkaði fólki fyrir stuðninginn.

„Þakka ykkur fyrir skilaboðin," skrifaði Kinsky yfir mynd sem hann birti á Instagram Story. Þar var hann að horfa aftur á frammistöðu sína í tapinu í Madríd.

„Þetta fór úr því að vera draumur yfir í martröð og svo aftur yfir í draum. Sjáumst."

   10.03.2026 21:30
De Gea sendir Kinsky skilaboð

Slapp
Athugasemdir
banner