Andy Dunn, einn helsti íþróttafréttamaður Mirror, segir að Englendingar séu að ofmeta styrkleika ensku deildarinnar.
Eftir deildarkeppni Meistaradeildarinnar var mikil umræða um yfirburði enska boltans en þessi vika hefur verið ömurleg fyrir ensku liðin, þegar fyrri leikir 16-liða úrslita Meistaradeildarinnar fóru fram. Ekkert liðanna vann sigur. Tottenham og Manchester City fengu skelli, og Liverpool og Chelsea töpuðu. Newcastle og Arsenal gerðu jafntefli.

Í grein Dunn segir hann Englendinga þurfa að horfa til lengri tíma til þess að hægt sé að tala um yfirburði. Bendir hann á að ensk lið hafi unnið Meistaradeildina sjö sinnum frá stofnun ensku úrvalsdeildarinnar en spænsk lið þrettán sinnum á sama tímakafla.
Þegar horft sé til Evrópudeildarinnar hafi ensk lið unnið keppnina fimm sinnum á meðan spænsk lið hafa gert það tólf sinnum.
„Eru menn líka að horfa framhjá því að ensk úrvalsdeildarlið áttu aðeins tvo á topp 20 í kjörinu á Ballon D’Or gullboltanum fyrir 2025? Það eru mjög margir góðir leikmenn að spila í ensku úrvalsdeildinni en margir af þeim allra bestu spila ekki hér." skrifar Dunn í pistli sínum.
Hann bendir á að enska deildin sé efst á styrkleikalista UEFA þar sem flest liðin komist langt í Evrópukeppnum, það sé vegna fjárhagslegs styrkleika ensku deildarinnar og að fleiri félög geti eytt háum upphæðum í leikmenn.
„Arsenal og Liverpool ættu að klára sín verkefni í næstu viku og það yrði góður árangur að eiga tvö lið í 8-liða úrslitum, en þessi vika bendir okkur á að við erum ekki eins góð og margir halda."
Athugasemdir