David de Gea, fyrrum markvörður Manchester United og núverandi markvörður Fiorentina, hefur komið Antonin Kinsky til varnar eftir hörmulega frammistöðu hans með Tottenham gegn Atletico Madrid í kvöld.
Igor Tudor, stjóri Spurs, ákvað að byrja með Kinsky í markinu gegn Atletico Madrid í fyrri leik liðanna í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar þar sem Guglielmo Vicario hefur verið mjög slakur á tímabilinu.

Þetta var tækifæri fyrir Kinsky að sýna sig og sanna, en í staðinn var hann það lélegur að honum var skipt af velli eftir 17 mínútur þegar staðan var orðin 3-0 fyrir Atletico.
„Ef þú hefur ekki verið markvörður þá getur þú ekki skilið hversu erfitt er að spila þessa stöðu," skrifaði De Gea á X.
„Höfuðið upp og reyndu aftur."
Athugasemdir