Kovac orðaður við stjórastól Liverpool - Newcastle vill Gibbs-White - Dewsbury-Hall orðaður við Tottenham
banner
   mið 12. maí 2021 19:39
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Aldís Kara í SR (Staðfest)
Aldís Kara Lúðvíksdóttir.
Aldís Kara Lúðvíksdóttir.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
SR hefur nælt í Aldísi Köru Lúðvíksdóttur sem er með mikla reynslu úr efstu og næst efstu deild.

SR er nýstofnað lið í kvennaboltanum sem er í samstarfi við Þrótt Reykjavík. Liðið leikur í 2. deild í sumar.

Aldís Kara spilaði ekki síðasta sumar þar sem hún eignaðist barn. Aldís skoraði þrjú mörk í sextán leikjum með FH þegar liðið komst upp í efstu deild 2019.

Aldís er uppalin hjá FH en hefur einnig spilað með Breiðablik á ferli sínum. Hún hefur alls spilað 139 leiki á ferli sínum og skorað 75 mörk.

Aldís á jafnframt 28 leiki með yngri landsliðum Íslands og kemur eflaust með mikla reynslu í lið SR.

SR hefur leik í 2. deildinni gegn Völsungi á morgun.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner