Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 12. maí 2021 16:00
Ívan Guðjón Baldursson
Einherji fær tvo Spánverja og einn Búlgara (Staðfest)
Mynd: Alice Mutch
Einherji hefur verið að styrkja sig undanfarna daga og eru þrír nýir leikmenn komnir til félagsins, tveir Spánverjar og einn Búlgari.

Roque Duran Lebrón og Alejandro Barce Lechuga eru báðir miðjumenn fæddir 1998. Þeir koma frá CA Antoniano og Trebujena CF í spænsku neðri deildunum.

Kantmaðurinn Alejandro Barce lék í deild fyrir neðan Roque Duran.

Stefan Penchev Balev er kantmaður fæddur 1997 sem lék síðast fyrir Vallentuna í sænsku D-deildinni.

Einherji leikur áfram í 3. deild eftir að hafa fengið 23 stig úr 20 leikjum í fyrra.
Athugasemdir
banner
banner
banner