Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   mið 12. maí 2021 07:00
Ívan Guðjón Baldursson
ÍA fær ítalskan miðjumann - Lánaður til Kára (Staðfest)
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
ÍA var að krækja sér í ungan miðjumann frá Ítalíu sem mun þó leika að láni hjá Kára í sumar.

Martin Montipó er uppalinn hjá Parma. Hann er fæddur um aldamótin og mun reyna að aðlagast íslenska boltanum fljótt.

ÍA hefur ekki tilkynnt félagaskiptin en Martin er kominn með leikheimild.

Kári leikur í 2. deild og tapaði fyrir KF í fyrstu umferð. Liðið er enn í Mjólkurbikarnum eftir að hafa slegið Vængi Júpiters og Skallagrím úr leik.
Athugasemdir
banner
banner