Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   mið 12. maí 2021 07:40
Ívan Guðjón Baldursson
McKenna Davidson til ÍA (Staðfest)
Mynd: Lietuvos Futbolas
ÍA er búið að tryggja sér bandaríska framherjann McKenna Akimi Davidson, sem er fædd 1994.

McKenna lék síðast í litháska boltanum þar sem hún raðaði inn mörkunum með langbesta liði landsins, FC Gintra.

Það verður áhugavert að fylgjast með McKenna í Lengjudeild kvenna þar sem Skagakonur byrjuðu tímabilið á tapleik gegn Gróttu.

McKenna lék fyrir Pacific University og á leiki að baki fyrir Chattanooga, Issaquah Gunners, FC Freeze og Wexford Youths.

ÍA endaði í áttunda sæti Lengjudeildarinnar í fyrra, með 15 stig úr 17 umferðum.
Athugasemdir
banner