Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 12. maí 2021 23:40
Magnús Már Einarsson
Morten Beck í ÍA á láni (Staðfest)
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
ÍA hefur fengið danska framherjann Morten Beck Andersen á láni frá FH rétt fyrir lok félagaskiptagluggans.

Morten Beck hefur ekki komið við sögu í fyrstu leikjum FH á tímabilinu.

Hinn 33 ára gamli Morten Beck spilaði með KR árið 2016 áður en hann fór aftur til Danmerkur.

Morten kom til FH um mitt sumar 2019 og skoraði þá átta mörk í jafnmörgum leikjum. Í fyrra spilaði Morten minna en hann skoraði þá eitt mark í þrettán leikjum í Pepsi Max-deildinni.

FH og ÍA mætast í Pepsi Max-deildinni annað kvöld.
Athugasemdir
banner
banner
banner