Reynir Sandgerði hefur krækt í Sæþór Ívan Viðarsson frá keppinautum sínum í Leikni Fáskrúðsfirði.
Sæþór Ívan er miðjumaður sem er fæddur árið 2001. Þrátt fyrir að vera ungur að árum er hann með mikla reynslu úr meistaraflokki. Hann hefur spilað 60 leiki í deild og bikar með Leikni og skorað sjö mörk.
Hann hefur spilað allan sinn feril með Leikni en hefur núna fengið félagaskipti í Reyni.
Reynir vann sinn fyrsta leik í 2. deildinni í sumar, 2-0 gegn Haukum. Leiknir byrjaði tímabilið á 2-0 tapi gegn ÍR en Sæþór spilaði ekki í þeim leik.
Athugasemdir