Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 12. maí 2021 18:04
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Viktor Unnar í Álafoss (Staðfest)
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Viktor Unnar Illugason hefur fengið félagaskipti yfir í Álafoss sem leikur í 4. deild karla.

Viktor Unnar á 63 leik að baki í efstu deild með Breiðabliki, Val, Selfossi og Þrótti.

Viktor fór ungur til Reading á Englandi. Hann fór til Englands með Gylfa Þór Sigurðssyni og voru þeir saman í unglingaliðum Reading.

Viktor spilaði í fyrra með Smára í 4. deild og skoraði þá tvö mörk í sjö leikjum. Þar áður lék hann með Kórdrengjum og KV í 3. deild.

Álafoss er í C-riðli 4. deildar með Álftanesi, Birninum, Herði, KÁ, KM, Mídasi, Reyni H., og Ými. Keppni í riðlinum hefst um næstu helgi, en Álafoss hefur leik eftir nákvæmlega viku gegn KM.
Athugasemdir
banner
banner