Fotbolti.net
12.05.22 - 16:02
Elvar Geir Magnússon

Fabinho ekki með í bikarúrslitaleiknum

Fabinho ekki með í bikarúrslitaleiknum
Canon

Mynd: EPA

Jurgen Klopp hefur staðfest það að miðjumaðurinn Fabinho muni missa af úrslitaleik FA bikarsins en er bjartsýnn á að hann muni snúa aftur fyrir lok tímabilsins.

Fabinho fór meiddur af velli í fyrri hálfleik í sigrinum gegn Aston Villa vegna vöðvameiðsla.
Fabinho getur ekki tekið þátt í leiknum gegn Chelsea á Wembley um helgina en stjóri Liverpool vonast til þess að hann geti snúið aftur áður en tímabilinu lýkur. Hann býst við að hann verði klár fyrir úrslitaleik Meistaradeildarinnar þar sem Liverpool mun mæta Real Madrid.

Bikarúrslitaleikurinn verður klukkan 15:45 á laugardaginn.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.