Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
   lau 12. júní 2021 06:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Ashley Fletcher til Watford (staðfest)
Mynd: Getty Images
Hinn 25 ára gamli framherji, Ashley Fletcher, mun ganga til liðs við Watford á frjálsi sölu þegar félagskiptaglugginn opnar 1. júlí.

Fletcher var síðast á mála hjá Middlesbrough en þar spilaði hann 108 leiki og skoraði í þeim 28 mörk.

Fletcher var í akademíu Manchester United í sex ár. Hann fór á lán til Barnsley þar sem hann skoraði bæði þegar liðið vann neðrideildarbikarinn sem margir kalla enn málningabikarinn eða framrúðubikarinn og í úrslitaleik C-deildarinnar árið 2016.

Watford tryggði sér sæti í ensku úrvalsdeildinni á næsta tímabili er liðið hafnaði í 2. sæti í Championship deildinni á nýliðnu tímabili.


Athugasemdir
banner
banner