Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   lau 12. júní 2021 16:04
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Byrjunarlið Stjörnunnar og Vals: Smáradona á bekknum - Emil í banni
Arnór Smárason er á bekknum
Arnór Smárason er á bekknum
Mynd: Fótbolti.net - Tom
Elís Rafn kemur inn í lið Stjörnunnar
Elís Rafn kemur inn í lið Stjörnunnar
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Stjarnan tekur á móti Íslandsmeisturum og toppliði Vals klukkan 17:00 á Samsungvellinum. Stjarnan er í næstneðsta sæti með þrjú stig og á enn eftir að ná í sinn fyrsta sigur í sumar.

Smelltu hér til að fara í beina textalýsingu frá leiknum!

Valur gerði 1-1 jafntefli gegn Víkingi á mánudag í síðasta leik sínum og Stjarnan gerði 1-1 jafntefli gegn Fylki fyrir þrettán dögum í sínum síðasta leik.

Ein breyting er á liði Stjörnunnar frá síðasta leik. Emil Atlason tekur út leikbann þar sem hann fékk rautt spjald gegn Fylki og inn í liðið kemur Elís Rafn Björnsson.

Engar breytingar eru á liði Vals frá síðasta leik. Arnór Smárason er á bekknum í fyrsta sinn í deildinni en hann kom frá Lilleström fyrir tímabilið og hefur glímt við meiðsli.

Byrjunarlið Stjörnunnar:
1. Haraldur Björnsson (m)
2. Brynjar Gauti Guðjónsson (f)
6. Magnus Anbo
7. Einar Karl Ingvarsson
10. Hilmar Árni Halldórsson
11. Þorsteinn Már Ragnarsson
12. Heiðar Ægisson
20. Eyjólfur Héðinsson
21. Elís Rafn Björnsson
24. Björn Berg Bryde
32. Tristan Freyr Ingólfsson

Byrjunarlið Vals:
1. Hannes Þór Halldórsson (m)
2. Birkir Már Sævarsson
3. Johannes Vall
4. Christian Köhler
6. Sebastian Hedlund
7. Haukur Páll Sigurðsson (f)
9. Patrick Pedersen
10. Kristinn Freyr Sigurðsson
11. Sigurður Egill Lárusson
13. Rasmus Christiansen
77. Kaj Leo í Bartalsstovu

Smelltu hér til að fara í beina textalýsingu frá leiknum!
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner