Barcelona vill Díaz frá Liverpool - Úlfarnir skoða markverði - City til í að hlusta á tilboð í Grealish
   lau 12. júní 2021 11:55
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Moyes skrifar undir nýjan samning við West Ham (staðfest)
Mynd: EPA
David Moyes hefur skrifað undir nýjan þriggja ára samning við West Ham. Hann var orðaður við endurkomu til Everton áður en hann framlengdi við West Ham.

Moyes fékk sex mánaða samning hjá West Ham í nóvember 2017. Samningur hans var ekki framlengdur þá en hann var síðan fenginn aftur til liðsins í desember 2019.

West Ham hafnaði í 6. sæti ensku úrvalsdeildarinnar og mun því leika í Evrópudeildinni á næstu leiktíð. David Moyes var spurður hvernig honum leyst á að vera búinn að skrifa undir nýjan samning við West ham.

„Ég er í skýjunum með að vera búinn að skrifa undir nýjan samning við West Ham." sagði Moyes

„Hér vil ég vera og ég er ánægður. Ég er spenntur að fá þetta tækifæri að byggja ofan á það sem við höfum þegar afrekað hér. Ég og eigendurnir erum á nákvæmlega sömu blaðsíðu um hver næstu skref félagsins eru."
Athugasemdir
banner
banner
banner