Manchester City hefur náð samkomulagi við Rosenborg um kaup á norska undrabarninu Sverre Nypan.
Kaupverðið er 15 milljónir evra fyrir þennan stórefnilega leikmann.
Kaupverðið er 15 milljónir evra fyrir þennan stórefnilega leikmann.
City var eitt af þeim félögum sem var að eltast við hann í janúar en svo komu fréttir um að Aston Villa væri líklegasti áfangastaðurinn. Hlutirnir eru hins vegar fljótir að breytast í fótboltanum, en talið er að fjárhagsvandræði hafa haft áhrif á Villa í baráttunni um Nypan.
Nypan, sem var einnig orðaður við Arsenal, kemur til með að vera dýrasti leikmaður sem seldur hefur verið úr norsku úrvalsdeildinni en City stefnir á að lána hann í burtu á næsta tímabili svo hann geti haldið áfram að þróast.
Þessi 18 ára gamli miðjumaður er talinn einn af efnilegustu leikmönnum heims. Nypan spilaði sinn fyrsta leik með Rosenborg árið 2022 og síðan þá verið fastamaður í liðinu.
Athugasemdir